Velkomin á heimasíðuna okkar
Okkar áhugamál er rækta bæði sauðfé og hross, og í því felst mikil eftirvænting, von og kröfur um betri árangur.
Sauðfjárræktin hefur gengið hægt og bítandi upp á við. Af áhuga, natni og markvissri ræktun hefur okkur tekist að ná nokkuð góðum árangri.
 |
Sigurborg Hanna og Rökkvi |
Hrossaræktin er alltaf spennandi.
Við að eiga von á folaldi, sjá það nýkastað, vakna væntingar um góðan hest. Það yljar um hjartaræturnar og veitir bjartsýni á framtíðina.
 |
Unghryssur á fallegum degi |
Markmiðið er að rækta fjölhæf og falleg ganghross með mikinn vilja og trausta lund. Gæðingarnir
Grímnir og Rökkvi hafa staðið sig vel á keppnisvellinum ásamt fleirum hrossum ættuðum frá Oddsstöðum.
 |
Riðið yfir Grímsá |
Ferðaþjónusta hefur stöðugt orðið stærri þáttur í rekstri búsins, þar eru hestaferðir öflugasti þátturinn.
Markmiðið er að veita vandaða þjónustu, þar sem ferðamennirnir kynnast fjölskyldunni, hrossaræktinni og annari starfsemi í reynd.
Myndir af reiðhestum og uppl. af Veraldar-Feng.
Stundum skógrækt og tökum þátt í uppgræðslu lands.
Á heimasíðunni eru nokkrar myndir frá vinum og ánægðum ferðamönnum.
Bestu þakkir til Ingerar Frederiksen och Magdalenu Storsveen.
Þökkum starfsfólki www.nepal.is fyrir veitta aðstoð.